UPPLIFÐU JAFNVÆGI Á EIGIN SKINNI
GILDIN OKKAR
HEILINDI
Á Íslandi er ekkert dýrmætara en gott orðspor.
Við lofum ekki upp í ermina á okkur og leggjum okkur fram við að vera heiðarleg í öllum okkar samskiptum. Við viljum gera heiminn betri og allar ákvarðanir okkar taka mið af því. Við erum ennþá að læra og lofum því að bæta okkur þar sem við bætingar er þörf. Við munum alltaf leitast við að velja sjálfbærar og vistvænar lausnir í okkar framleiðslu, við getum alltaf gert betur og munum gera það.
HREINLEIKI
Við trúum á magnaðan kraft náttúrunnar. Við nýtum vísindin til að hreinsa, sía út og einangra hreina CBD olíu sem þú getur treyst. Vörurnar okkar eru blanda af náttúrulegum efnum úr plönturíkinu og olíum að viðbættu hárréttu magni af CBD til að auka virkni þeirra. Markmið okkar er alltaf að fá sem mesta virkni úr eins fáum, náttúrulegum, hráefnum og hægt er.
HÁTÍÐLEG?
Samt ekki. Við viljum ekki taka okkur of hátíðlega. Við höldum því ekki fram að við höfum leyst lífsgátuna en trúum því að vörurnar okkar geti raunverulega breytt lífum þeirra sem hana prófa til hins betra.